Forsíða
60.519 greinar á íslensku.
Al Capone
Al Capone var bandarískur glæpaforingi sem var virkur á bannárunum í Chicago á þriðja áratugnum.
Capone var af ítölskum uppruna og leiddi glæpasamtök í Chicago í Bandaríkjunum á áfengisbannsárunum, 3. áratug síðustu aldar. Hann fæddist í New York, foreldrar hans voru ítalskir innflytjendur og hann gekk í skóla fram til fermingaraldurs. Hann fór þá að stunda smáglæpi í New York fram til tvítugsaldurs þegar hann fluttist til Chicago til þess að nýta sér áfengisbannið, að græða á sölu og smygli ólöglegs áfengis.
Hann reis fljótt hátt í völdum í glæpasamtökum Chicago og um 1925 var hann leiðtogi glæpasamtaka þar í borg. Ásamt áfengisglæpunum mútaði hann yfirvöldum og stóð í blóðugum stríðum við óvinaglæpasamtök ásamt vændi og fjárhættuspilum. Einn alræmdasti glæpur hans mun vera Valentínusardagsmorðin árið 1929 þegar menn hans drápu sjö af óvinaklíkumeðlimum hans. Hann var dæmdur fyrir skattsvik árið 1931 og eyddi átta árum í fangelsi, meðal annars í Alcatraz en var sleppt 1939 af heilsufarsástæðum, en hann var með alvarlegt tilfelli af sárasótt. Hann dó árið 1947 í villu sinni í Flórída.
Vissir þú...

- … að um helmingur allra íbúa Paragvæ lést í Paragvæstríðinu 1864–1870?
- … að barnastjarnan Shirley Temple varð á fullorðinsárum sínum sendiherra Bandaríkjanna í Gana og Tékkóslóvakíu?
- … að samkvæmt hefðum ástralskra frumbyggja áttu eingöngu karlmenn að leika á hljóðfærið didgeridoo (sjá mynd)?
- … að metþátttaka í Reykjavíkurmaraþoninu var árið 2014, þegar 15.552 þáttakendur voru skráðir?
- … að titill bókarinnar Lord of the Flies er vísun í viðurnefni djöfulsins Belsebúbs?
Fréttir

- 27. september: Aleksandar Vučić, forseti Serbíu, segir af sér.
- 17. september: Ulf Kristersson segir af sér sem forsætisráðherra Svíþjóðar eftir að stjórn hans missir meirihluta sinn í þingkosningum.
- 16. september: Hashim Thaçi (sjá mynd), fyrrum forseti Kósovó, er dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir stríðsglæpi.
Yfirstandandi: Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Íransstríðið
Nýleg andlát: Gloria Steinem (2. september) • Sigríður Þorvaldsdóttir (31. ágúst)
30. september
- 2009 - Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra sagði af sér vegna ósamkomulags innan annarrar ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur um Icesave-málið.
- 2009 - Minnst 1110 fórust í jarðskjálfta sem reið yfir Súmötru.
- 2010 - Hópur lögreglumanna í Ekvador hertóku þingið og forsetann, Rafael Correa, vegna óánægju með laun sín.
- 2011 - Íslenska kvikmyndin Eldfjall var frumsýnd.
- 2015 - Rússar hófu loftárásir á Íslamska ríkið og stjórnarandstæðinga í Sýrlandi.
- 2016 - Tvö málverk eftir Vincent van Gogh sem hafði verið stolið frá Van Gogh-safninu í Amsterdam árið 2002, fundust.
- 2019 – Brú Maríu Krónprinsessu sem liggur yfir Hróarskeldufjörð var opnuð fyrir umferð.
Systurverkefni
|
|