Fara í innihald

Kjarninn

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kjarninn
Merki fjölmiðilsins
Stofnár: 2013
Ritstjóri: Þórður Snær Júlíusson
Útgáfuform: Vefmiðill
Dreifing/upplag/áhorfendafjöldi: 10.000 skráðra appa
Útgefandi: Kjarninn miðlar ehf.
Útgáfustaður: Reykjavík, Ísland
Vefsíða

Kjarninn var íslenskur vefmiðill. Upphaflega kom Kjarninn út sem stafrænt fréttatímarit sem kom út fyrir snjalltæki og á vefnum á fimmtudögum. Einkahlutafélagið Kjarninn miðlar ehf. reka Kjarnann út og ritstjóri er Þórður Snær Júlíusson. Kjarninn var fyrsti íslenski fjölmiðillinn sem sérstaklega er hannaður fyrir spjaldtölvur.[1] Hlaðvarp miðilsins heitir Hlaðvarp Kjarnans og kemur út á vefnum.

Kjarninn kom fyrst út 22. ágúst 2013 og kom út vikulega þar til 2. október 2014 þegar útgáfan var færð alfarið á vefinn. Ritstjórnarstefna Kjarnans byggist á sjálfstæðum fréttaflutning, gagnrýni og skemmtilegheit, að því er stendur í opinberri ritstjórnarstefnu miðilsins.[2] Kjarninn er frímiðill og byggir tekjur sínar á auglýsingum og styrkjum frá almenningi. Efnistökin eru ekki háð sérsviðum heldur ráðast af „því sem skiptir máli“.[3]

Í desember 2022 samdi Kjarninn um samruna við Stundina í nýjan fjölmiðil.[4] Miðlarnir mynduðu saman fréttamiðilinn Heimildina, sem hóf útgáfu þann 13. janúar 2023.[5]

Eigendur Kjarnans eru HG80 ehf., í eigu Hjálmars Gíslasonar (16,55%), Miðeind ehf., í eigu Vilhjálms Þorsteinssonar (15,98%), Magnús Halldórsson (13,79%), Þórður Snær Júlíusson (12,20%), Birna Anna Björnsdóttir (9,39%), Hjalti Harðarson (9,25%), Milo ehf., í eigu Gumma Hafsteinssonar og Eddu Hafsteinsdóttur, (5,69%), Fagriskógur ehf. í eigu Stefáns Hrafnkelssonar (5,69%), Ágúst Ólafur Ágústsson (5,69%), Birgir Þór Harðason (2,9%) og Jónas Reynir Gunnarsson (2,9%).[6]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Ritstjórn Eyjunnar. „Ritstjóri Kjarnans: Höfum tröllatrú á því sem við erum að gera“. Sótt 4. október 2013.
  2. ↑ Kjarninn. „Um Kjarnann“, skoðað 22. ágúst 2017.
  3. ↑ Fjölmiðlanefnd. „Kjarninn miðlar ehf“. Sótt 4. október 2013.
  4. ↑ „Stundin sameinast Kjarnanum“. Stundin. 21. desember 2022. Sótt 4. janúar 2023.
  5. ↑ Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir; Þórður Snær Júlíusson (13. janúar 2023). „Velkomin í Heimildina“. Heimildin. Sótt 14. janúar 2023.
  6. ↑ Fjölmiðlanefnd. „Kjarninn miðlar ehf.“ Geymt 8. mars 2019 í Wayback Machine, sótt 22. ágúst 2017.