Fara í innihald

Nýgráða

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Nýgráða er mælieining horna, sem er 1⁄400 úr heilum hring, þ.e.a.s. að í hverjum hring séu 400 nýgráður. Nýgráður komu til vegna tengsla við tugakerfið en eru samt lítið notaðar. Algengara er að notast við bogagráður, sem eru 1⁄360 af heilum hring.

Hver fjórðungur hrings er 100 nýgráður, sem auðveldar bæði skilning og reikning.

0°=0 nýgráður
90°=100 nýgráður
180°=200 nýgráður
270°=300 nýgráður
360°=400 nýgráður
Image  Þessi stærðfræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.