Fara í innihald

Plinius eldri

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Image
Pliníus eldri

Gaius Plinius Secundus eða Pliníus eldri (23 – 24. ágúst 79) var rómverskur fræðimaður og rithöfundur og sjóliðsforingi í rómverska flotanum. Hann samdi ritið Naturalis Historia (ísl. Náttúrusaga[1]), sem var nokkurn konar alfræðirit um náttúruvísindi og talinn forfaðir alfræðiorðabóka síðari tíma. Hann er nefndur „eldri“ til aðgreiningar frá frænda sínum, Pliníusi yngri en báðir urðu vitni að eldgosinu í Vesúvíusi þann 23. ágúst árið 79 e.Kr. sem varð Pliníusi eldri að aldurtila.

  1. ↑ "Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn", 1916
Image  Þessi fornfræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.