Sejong mikli
| ||||
Sejong | ||||
| Ríkisár | 18. september, 1418 – 8. apríl, 1450 | |||
| Skírnarnafn | Yi To | |||
| Fæddur | 15. mái, 1397 | |||
| Hanyang, Joseon | ||||
| Dáinn | 4. ágúst 1450 (52 ára) | |||
| Seúl|Hanyang, Joseon | ||||
| Gröf | Yeongneung, Yeoju, Suður-Kórea | |||
| Konungsfjölskyldan | ||||
| Faðir | Taejong | |||
| Móðir | Wŏn'gyŏng | |||
| Drottning | Sohŏn | |||
Sejong mikli (kóreska: 세종대왕; Hanja: 世宗大王; 15. maí 1397 – 8. apríl 1450)[1], eða Sejong (세종; 世宗)[2], var fjórði konungur kóreska ríkisins Joseon. Hann ríkti frá 1418 til dauðadags árið 1450. Hann er almennt talinn merkasti konungur í sögu Kóreu og er sérstaklega minnst fyrir sköpun Hangúl, stafrófs kóreskrar tungu.
Valdatíð Sejongs einkenndist af miklum framförum í vísindum, tækni, læknisfræði, landbúnaði og listum. Sejong fylgdist ekki aðeins með mörgum slíkum verkefnum heldur tók hann einnig virkan þátt í þeim.[3] Árið 1420 endurreisti Sejong rannsóknarstofnun ríkisins, Sal hinna verðugu (Jiphyeonjeon). Salurinn stýrði verkefnum eins og fyrsta kóreska dagatalinu Ch'ilchŏngsan, 365 blaðsíðna lækningaritinu Ŭibangyuch'wi og landbúnaðarritinu Nongsa chiksŏl.
Árið 1419 setti Sejong af stað hinni árangursríku Ōei-innrás gegn japönsku eyjunni Tsushima. Í kjölfarið fylgdu áratugir friðar og viðskipta milli Kóreu og Japans. Sejong stækkaði einnig norðurmörk Kóreu svo þau náðu næstum núverandi landamærum með því að herja á og innlima ránsmenn Dzsúrtsen-ættbálkanna, þótt það svæði hafi áfram verið erfiðleikum bundið. Hann viðhélt einnig góðum samskiptum við lénsherra sína í Mingveldinu í Kína á sama tíma og hann hélt úti sjálfstæði Kóreu. Sejong réðst í viðamiklar skatt- og landbúnaðarumbætur sem skiluðu aukinni landbúnaðarframleiðslu og lægri skatthlutföllum án þess að draga verulega úr skatttekjum. Hann leiddi einnig mikla útbreiðslu á áhrifum konfúsíanisma í Kóreu og dró úr áhrifum búddisma. Þrátt fyrir stefnu sína gegn búddisma var hann sjálfur búddisti í einkalífi sínu og tjáði trú sína auknum mæli, sem skapaði árekstra við konfúsíska embættismenn hans.
Sejong er talinn menningartákn í Suður-Kóreu þar sem hann hefur hlotið fjölda heiðursmerkinga. Sejong-borg ber nafn hans. Í opinberum textum í Norður-Kóreu eru menningarleg og vísindaleg framlög Sejongs metin á jákvæðan hátt, en á sama tíma er lögð áhersla á að raunveruleg lífskjör alþýðunnar undir hans stjórn hafi falið í sér aukin lénsskylda, þyngri skattbyrðar og stífa stéttaskiptingu.[4]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Kang 2006a, bls. 194.
- ↑ Ledyard 1990, bls. 18.
- ↑ Ledyard 1998, bls. 90.
- ↑ 최승희. 세종 (世宗). Encyclopedia of Korean Culture (kóreska). Academy of Korean Studies. Sótt 5 ágúst 2025.