Fara í innihald

Stálöndin

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Stálöndin (ítalska: Paperinik) er ofurhetja í myndasögunum frá The Walt Disney Company Italia sem fer um Andabæ á næturnar á fljúgandi bíl og berst gegn glæpum. Stálöndin er leynilegt hliðarsjálf Andrésar Andar. Stálöndin varð til þegar Elisa Penna, ritstjóri vikuritsins Topolino (undanfara Syrpunnar) stakk upp á því við myndasöguhöfundinn Guido Martina að gera myndasögu byggða á vinsælum ítölskum rökkurmyndasögum á borð við Diabolik og Satanik.[1][2] Martina þróaði persónuna í samstarfi við teiknarann Giovan Battista Carpi og skrifaði flestar sögurnar næstu tíu árin.[3][4][5] Fyrsta Stálandarsagan, „Paperinik il diabolico vendicatore“ („Djöfullegi hefnandinn Stálöndin“), kom út 8. júní 1969. Síðan þá hefur Stálöndin birst í fjölda myndasögutímarita frá Disney og í sérheftum.

Stálöndin var í upphafi eins konar hefnandi sem birtist á næturnar til að ná sér niður á þeim sem beita Andrés og vini hans órétti. Helstu andstæðingar hans voru í byrjun Jóakim Aðalönd og Hábeinn heppni. Seinna þróaðist persónan út í að verða sjálfskipaður löggæslumaður sem berst gegn glæpum í Andabæ (líkt og Leðurblökumaðurinn). Stálöndin á leynilegt fylgsni undir húsi Andrésar. Í fataskáp í svefnherbergi hans er lyfta sem flytur Andrés niður í fylgsnið þar sem hann geymir leynivopnin sín, grímur af ýmsum Andabæingum og Stálandarbúninginn. Georg gírlausi sér um að smíða búnað Stálandarinnar. Hann hefur auk þess breytt bíl Andrésar þannig að hann geti flogið. Margar persónur í Andabæ hafa uppgötvað leyndarmál Stálandarinnar, en hún finnur alltaf leið til að láta þær gleypa gleymskumola sem þurrka út skammtímaminnið. Sögurnar ganga oft út á það hvað vinum Andrésar þykir hann ólíkur Stálöndinni og fáránleg hugmynd að hann geti verið hún.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Andrea Salimbeti. „Gli autori di Paperinik“. Homepage di Stefanie and Andrea. Sótt 8.6.2026.
  2. ↑ „Parte la collana "Paperinik – Le origini del mito"“. 30. ágúst 2019.
  3. ↑ „Paperino il perseguitato muore e...“. Fumettologica. 11. desember 2014. Sótt 29 maí 2019.
  4. ↑ Andrea Bramini (20 júní 2017). „BreVisioni - Paperinik – Le origini, vol. 1 (Martina, AA.VV.)“. Sótt 29 maí 2019.
  5. ↑ „Approfondimenti - Pikappa chi sei? (prima parte)“. Lo Spazio Bianco. 11 október 2012. Sótt 29 maí 2019.