Fara í innihald

Saint Croix

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá St. Croix)
Image
Danskt kort frá 1754 af St. Croix
Image
Borgin Frederiksstad á Saint Croix árið 1848
Image
Plantekra Mary Fancy á Saint Croix
Image
Koma Valdemars prins af Danmörku til St. Croix ár 1879
Image
Danski fáninn dreginn að húni í síðasta sinn við höll landshöfðingjans 31. mars 1917

Saint Croix er eyja í Karíbahafi sem nú tilheyrir Bandarísku Jómfrúaeyjum og er hún stærst þeirra eyja. Íbúar á eyjunni voru um 41 þúsund árið 2020. Hæsti fjall á St. Croix er 355 metra hátt. Eyjan hefur verið kölluð tvíburaborg vísar það t til tveggja borga sem eru þar en það eru borgin Fredrikstad á vesturenda eyjunnar og Christiansted á norðurenda eyjunnar.

Eyjan St. Croix var nefnd Isla de la Santa Cruz (eyja hins heilaga krosss) af Kristóferi Kolumbusi árið 1493. Á máli Tainóa frumbyggja kallast eyjan Ay Ay sem merkir á eða fljót. Á máli Karíba frumbyggja er eyjan nefnd Cibuquiera sem merkir steinaland.

Menjar eru um búsetu manna á eyjunni frá 1-700 CE og búsetu tainóa frá 700 til 1425 og svo karíba frá 1425. Eyjan var óbyggð um 1590.

Þegar Kólumbus tók landfestar á St. Croix 14. nóvember 1493 þá réðust innfæddir Karíbar samstundis á liðsmenn hans og er það fyrsti skráði bardaginn milli Spánverja og innfæddra í Nýja heiminum.

Spánverjar tóku aldrei yfir eyjarnar en innfæddir íbúar dreifðust til annarra eyja eða voru drepnir og var eyjan óbyggð í lok 16. aldar.

Nýlendutíminn

[breyta | breyta frumkóða]

Hollenskir og enskir landnemar settust að á St. Croix árið 1625 ásamt frönskum flóttamönnum frá St. Kitts. Englendingarnir ráku burt hollenska og franska landnema en voru svo sjálfir reknir burt í kjölfar spænskrar innrásar frá Puerto Rico í ágúst 1650.

Um 1650 réðust Frakkar á eyjunna og stofnuðu þar nýlendu með 300 íbúum. Árin 1651 til 1664 var eyjan undir stjórn Mölturiddara sem ríktu yfir eyjunni í nafni Loðvíks 14. Eyjan komst svo undir stjórn franska Vestur-Indíufélagsins. Nýlendan var rýmd og íbúar fluttust til Hispaníóla árið 1695 þegar Frakkland var í því stríði við England og Holland sem kallað er Níu ára stríðið. Eftir það var eyjan óbyggð og yfirgefin í 38 ár.

Þann 15. júní 1733 gerðu Frakkland og Dansk-Norska ríkið með sér samning þar sem danska Vestur-Indíufélagið keypti St. Croix. Loðvík 15. staðfesti samninginn. Danskur kaupmaður og plantekrueigandi Frederik Moth að nafni varð fyrsti danski landshöfðingi eyjunnar. Samkvæmt manntali árið 1742 eru á eyjunni 120 plantekrur sem rækta sykurreyr, 122 plantekrur sem rækta baðmull, 1906 þrælar og 360 hvítir menn. Það sama ár tók Friðrik 5. Danakonungur við stjórn eyjunnar af félaginu.

Í næstum 200 ár voru eyjarnar St. Croix, St. T homas og St. John danska nýlendan Dönsku Vestur-Indíur. Um miðja og síðari hlutia 18. aldar voru þrælar á St. Croix milli 18 og 20 þúsund og hvítir íbúar milli 1500 og 2000.

Íslendingurinn Hans Jónatan fæddist árið 1784 í þrældómi á St. Croix. Hann flutti barn að aldri til Kaupmannahafnar og flúði tvisvar úr þrældómi þar. Í seinna skiptið árið 1802 flúði hann til Íslands og bjó á Djúpavogi

Bandaríski byltingarforinginn Alexander Hamilton og bróðir hans bjuggu í Christiansted með móður sinni. Þrælaverslun var bönnuð í dönsku nýlendunum árið 1792 en bannið tók ekki að fullu gildi fyrr en 1802. Fólk sem ennþá var í þrældómi var frelsað árið 1848 eftir þrælauppreisn sem varð það ár.

Bretar hernámu Dönsku-Vestur-Indíur í mars 1801. Hernámið stóð til apríl 1802. Bretar hernámu dönsku nýlenduna aftur í desember 1807 og stóð hernámið til 20. nóvember 1815. Bæði þessi hernám stöfuðu af því að Danir voru bandamenn Frakka í Napóleón stríðunum.. Það friður var saminn við Frakkland var eyjunum skilað til Danmerkur.