The Wayback Machine - https://web.archive.org/web/20130806063122/http://www.bokabeitan.is/
Fréttir @ 30 January 2013, “No Comments”

Nýjustu bækur Bókabeitunnar hafa aldeilis fengið góðar viðtökur og hreint frábæra dóma.

ImageSíðast í morgun fékk Kamilla Vindmylla heilar fjórar stjörnur í Fréttablaðinu. Umsögn Brynhildar gagnrýnanda er m.a.: „Ég frussaði af hlátri við lestur bókarinnar, svo illilega að á blaðsíðu 47 er nú risastór kaffiblettur.“

Anna Lilja í Morgunblaðinu hafði þetta um Kamillu að segja: „… í fáum orðum sagt; alveg gríðarlega skemmtileg bók. Bráðfyndin, vel skrifuð og krakkarnir í bókinni ofsalega flottir.“

Við erum hjartanlega sammála, Kamilla Vindmylla og bullorðna fólkið er rækilega fyndin bók!

ImageÍ desember fékk nýjasta Rökkurhæðabókin – Ófriður - líka 4 stjörnur í Fréttablaðinu og gagnrýnandi var svo spenntur eftir lesturinn að honum (henni):  „… var svo um og ó að ég hljóp strax og fann fyrstu þrjár bækurnar og gleypti þær í mig. Það er langt síðan unglingabók hefur komið mér jafn mikið á óvart og síðustu blaðsíðurnar í bókinni Ófrið.“

Druslubækur og doðrantar hafa einnig fjallað um Ófrið og segja meðal annars:  „Ógnin er áþreifanleg og sagan er virkilega óhugnanleg; ekki bara fyrir tilstilli einhverra einstakra hryllingstrixa heldur hefur maður á tilfinningunni að hvað sem er geti gerst og ekki sé endilega hægt að afstýra öllu illu (eins og kemur á daginn).“

Í Morgunblaðinu 15. desember var einnig fjallað um Ófrið og þótti gagnrýnanda bókin vera: „… hröð, vel uppbyggð, grimm og fyndin.“

ImageGrimmsystur: Ævintýraspæjarar er fyrsta þýdda bókin sem Bókabeitan gefur út. Bókin fékk ljómandi góðar viðtökur og starfsfólk bókaverslana valdi hana þriðju bestu þýddu barnabókina. Gagnrýnandi Morgunblaðsins gaf henni 3 og hálfa stjörnu og þykir ekki „… að undra að bækurnar hafi fengið jafngóðar viðtökur og raun ber vitni, því fyrir utan ferska nálgun á gömul ævintýri og persónur þeirra, þá er hér á ferðinni skemmtileg, hnyttin, spennandi og snörp saga sem vafalaust skemmtir mörgum, bæði börnum og fullorðnum.“

 

Fréttir @ 17 November 2012, “No Comments”

Um þessar mundir sendir Bókabeitan frá sér fjórðu bókina í bókaflokknum um krakkana í Rökkurhæðum. ImageNýja bókin heitir Ófriður og ber það nafn sannarlega nafn með rentu því í Rökkurhæðum veður allt í ofbeldi og … ófriði.

Matthías er nýfluttur í hverfið. Honum gengur illa að fóta sig í nýja skólanum og finnst samnemendur – og kennarar – óþarflega almennilegir. Allir keppast við að bjóða hann velkominn en þess á milli logar allt í slagsmálum og óútskýranlegum óhöppum.

Ingibjörg er vanari lífinu í Rökkurhæðum en þegar hún kynnist Matthíasi og fær að heyra hans hlið á málinu fer hún að sjá nýliðna atburði í nýju ljósi. Þau leggja saman tvo og tvo og fá út niðurstöðu sem þau ætla varla að trúa.

Bókin er sjálfstætt framhald fyrri bóka og tengist hinum gegnum hverfið Rökkurhæðir. Kunnuglegum andlitum bregður fyrir í stærri og minni hlutverkum og þeir sem þekkja til gætu séð atburði fyrri bóka í nýju ljósi.

Bækurnar hafa notið mikilla vinsælda hjá unglingum; og öðrum sem þora!

Fréttir @ 02 November 2012, “No Comments”

Bókabeitan kynnir með monti nýja bók; Grimmsystur: Ævintýraspæjarar. Bókin er sú fyrsta í bókaflokknum um systurnar Sabrínu og Dagnýju Grimm.

Image

Systurnar hafa verið á þvælingi milli fósturfjölskyldna í rúmt ár síðan foreldrar þeirra hurfu á dularfullan hátt. Sagan hefst þegar þær eru sendar til ömmu sinnar í Álftavík, ömmu sem var búið að segja þeim að væri dáin!

Þegar þær koma til Álftavíkur sýnist þeim bærinn vera rólegur lítill smábær. Þær komast þó fljótlega að því að þar ekki allt sem sýnist því að verur sem þær héldu að væru bara til í ævintýrabókum ganga um götur bæjarins, dulbúnar sem venjulegt fólk.

Amma þeirra segir þeim að þær séu afkomendur hinna frægu Grimmsbræðra og að Grimmsfjölskyldan gegni mikilvægu hlutverki í veröld ævintýranna. Það sem flestir þekki sem Grimmsævintýri séu í raun annálar bræðranna og sögulegar heimildir um óknytti og galdra.

Nú er komið að systrunum að sinna skyldum sínum sem meðlimir Grimmsfjölskyldunnar og gerast ævintýraspæjarar.

Fréttir @ 17 October 2012, “No Comments”
Image
Kamilla Vindmylla

Bókabeitur eru stoltar að kynna Kamillu Vindmyllu og bullorðna fólkið eftir Hilmar Örn Óskarsson.

Bókin kemur út um miðjan nóvember og hentar börnum á aldrinum 7-13 ára og öllum öðrum sem hafa gaman af fyndnum og skemmtilegum bókum.

Dularfullur geisli ferðast um borgina að næturlagi og í kjölfarið gerast einkennilegir hlutir. Svo einkennilegir að kannski ætti frekar að kalla þá tuttuogsjökennilega.

Kamilla Vindmylla er ellefu ára stelpa sem neyðist til að taka þessa tuttuguogsjökennilegu hluti í sínar eigin hendur, enda er það ómögulegt að taka hlutina í hendurnar á einhverjum öðrum því þá þyrfti maður fyrst að taka sjálfar hendurnar af einhverjum öðrum og það væri ekki bara ókurteisi heldur líka sóðalegt.

Góð ráð eru rándýr en Kamilla hefur samt ráð undir rifi hverju. Ekki þó ef góð ráð væru skriðdýr eða köngulær því það væri hreint og beint andstyggilegt að hafa slíkt undir rifjum.
Í þessari bók hittum við til dæmis vísindamanninn Elías Emil, Úlf og Uglu sem eru ákaflega sérstök gæludýr, ungsnillinginn Felix, ógrynnin öll af súkkulaðikexi og fullorðið fólk sem fer að haga sér allt öðruvísi en vanalega.
Fréttir @ 10 September 2012, “No Comments”

Þetta fékk Bókabeitan sent frá ánægðri ömmu:

„Ég á barnabarn, stúlku á fimmtánda ári.  Hún er lesblind og á erfitt með að lesa og halda athygli.  Þá datt mér í hug að lána henni bækur ykkar þar sem þær eru spennandi og ekki of langar.  Og viti menn – hún les hverja bókina á fætur annarri með miklum áhuga og lesefnið heldur henni algjörlega fastri svo hún getur ekki hætt!!  Henni þótti bók númer tvö enda allsvakalega og sorglega – hún las til að verða fimm í nótt!“

Svona athugasemdir ylja svo sannarlega og þökkum við ömmunni kærlega fyrir að gefa sér tíma til að senda okkur línu.

Fréttir @ 14 July 2012, “No Comments”

Nú eru Rökkurhæðir 1 og 2 til á rafbókarformi hjá Rafbókaversluninni Skinnu.

Rústirnar

Óttulundur

Bækurnar eru á sérstöku tilboðsverði um skamman tíma.

Fréttir @ 03 June 2012, “No Comments”

Birtist í Fréttablaðinu 2. júní 2012.

Mikil umræða hefur verið í þjóðfélaginu um að efla þurfi lestur barna og unglinga en ekki er víst að fólk geri sér almennt grein fyrir því hversu mikið tapast þegar börnin þeirra líta ekki í bók hátt í þrjá mánuði yfir sumartímann.

Sumarlestur

Erlendar rannsóknir sýna að þeim nemendum sem ekki opna bók í sumarleyfinu fer aftur. Á ensku nefnist þetta summer reading loss (eða summer learning loss) og vísar í þá afturför í lestrarfærni sem á sér stað yfir sumarið þegar börnin hljóta ekki formlega lestrarkennslu. Þetta er ekki bara tilfinning eða ágiskun kennara, heldur skráð og rannsakað fyrirbæri (sjá til dæmis Kim, JS. 2011 og 2012, og  Moynihan, L. 2011). Staðreyndin er sú að lestrarfærni þeirra sem lesa ekkert á sumrin  stendur ekki í stað milli vors og hausts heldur hrakar henni marktækt og það getur tekið nemendur allt að tvo mánuði að vinna sig upp í sömu færni og þeir höfðu við upphaf sumarleyfis. Lestrarfærni þeirra barna sem lesa eitthvað stendur í stað eða batnar jafnvel.

Þessar sömu rannsóknir sýna að það eru oftast þeir sem síst mega við því sem lesa minnst í sumarfríinu og standa því enn verr að hausti. Þetta vindur svo upp á sig og þeir sem ekkert lesa standa sífellt verr, eru lengur að vinna sig upp og ná jafnvel ekki jafnöldrum sínum yfir skólaárið.

Það sem helst spáir fyrir um hvort lestrarkunnáttu barns hrakar yfir sumartímann er hvort það les eða ekki og það hvort barnið les yfir sumartímann ræðst að mestu af því hvort það hefur aðgang að bókum eða ekki.

Ábyrgð foreldra

Á sumrin, þegar börn og unglingar fá ekki það aðhald sem skólastofan veitir, er ekki ólíklegt að þau þurfi hvatningu til lestrar og stuðning við val á lesefni.. Hér gegna foreldrar og forráðamenn lykilhlutverki. Fáðu lánaða eða keyptu bók handa ungmenninu þegar þú grípur bók handa þér, krakkar hafa alveg jafn gaman af nýju lesefni og við hin. Hinir fullorðnu ættu að hafa í huga að gera ungmennunum auðvelt að nálgast bækur sem henta áhuga og getu. Lestu bókina sem ungmennið les, vertu tilbúin til viðræðna um bókina og ræddu um aðrar bækur sem þú lest. Umræður um lestur efla áhugann á lestri.

Með því að gera lestur að sameiginlegri tómstundaiðju fjölskyldunnar yfir sumarið skapast skemmtilegar samverustundir og um leið aukast líkurnar á því að börnin mæti í skólann að hausti þokkalega búin undir skólaárið. En það eru fleiri en foreldrar sem geta haft áhrif.

Á ráðstefnunni Alvara málsins, Bókaþjóð í ólestri í janúar 2012 var bent á að ábyrgðin á bókmenntauppeldinu væri samfélagsins alls. Heimilin, skólarnir, fjölmiðlar og ekki síst yfirvöld þurfa að taka höndum saman og gera lestur að áhugaverðri og gildri iðju sem fær jákvæða athygli.

Við undirritaðar teljum verulega þörf á sumarlestrarátaki á Íslandi – áberandi, sýnilegu og ágengu átaki sem nær til allra sem að málinu koma – allra Íslendinga.

ImageSunnudaginn 20. maí 2012, fengu höfundar Rökkurhæða afhenta Vorvinda IBBY fyrir framlag sitt til barnamenningar.

Viðurkenningin er veitt einstaklingum eða stofnunum fyrir framlag til barnamenningar. Í ár hlutu Marta Hlín og Birgitta Elín viðurkenningu fyrir framlag sitt til bókmennta fyrir bækurnar um krakkana í Rökkurhæðum, Sinfóníuhljómsveit Íslands fékk viðurkenningu fyrir tónleikaröðina Litli tónsprotinn þar sem yngstu tónlistarunnendurnir fá einstakt tækifæri til að kynnast töfrum tónlistarinnar og Leikhópurinn Lotta fyrir frábært leikstarf fyrir börn á öllum aldri.

Image

ImageNýjasta bók Bókabeitunnar – Rökkurhæðir 3: Kristófer – hefur nú setið samfleytt 5 vikur á vinsældalista Eymundsson. Þetta eru frábærar móttökur og það er gott að vita að börn og unglingar vilja nýtt lesefni allt árið um kring.

Næsta bók – Rökkurhæðir 4: Ófriður – er á teikniborðinu og stefnt er að útgáfu hennar næsta haust.

ImageOkkur langar að minna alla á að nota ávísunina sem þeir fengu senda heim í síðustu viku.

100 krónur af hverri nýttri ávísun rennur til skólasafnasjóðs og styrkir þ.a.l. skólabókasöfnin okkar.

Þú færð afslátt af skemmtilegu lesefni og bætir um leið lestrarkost barnanna okkar – getur varla verið betra!

Ávísunin gildir til 14. maí svo enn er nægur tími.