Fréttir
Fleiri fréttir
FréttirVídeódanshátíðin sett í kvöld
Vídeódanshátíðin Boreal verður sett í Listasafninu á Akureyri í kvöld kl. 20 og stendur síðan yfir til 15. nóvember með sýningum og viðburðum í safninu sjálfu, Mjólkurbúðinni og Deiglunni.
FréttirViðtalstími bæjarfulltrúa þriðjudaginn 27. október
Boðið er upp á þrjú 30 mínútna viðtöl og þarf að bóka tíma fyrirfram á akureyri.is
FréttirÞjónustu- og fundagátt liggja niðri vegna uppfærslu
Vonast er til að þær verði aftur aðgengilegar síðar í dag, en mögulega ekki fyrr en á morgun.
Skipulag og lóðir í auglýsingu
Fleiri auglýsingar
SkipulagsmálSkipulagslýsing fyrir Hrappsstaði
Landeigendur Hrappsstaða hafa hafið vinnu við gerð deiliskipulags sem nær yfir 15,77 ha svæði í landi Hrappsstaða, vestan Móahverfis, Akureyri.
SkipulagsmálSjafnargata 5-15 - auglýsing lóða
Akureyrarbær hefur samþykkt að auglýsa 6 athafnalóðir í Sjafnargötu 5-15 lausar til úthlutunar.
SkipulagsmálTillaga að deiliskipulagi í Hrísey
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kynnir drög að tillögu að deiliskipulagi fyrir ofan núverandi byggðar í Hrísey.
Útboð í auglýsingu
ÚtboðÚtboð á vátryggingarþjónustu fyrir Akureyrarbæ, Hafnarsjóð Norðurlands og Norðurorku
Akureyrarbær óskar eftir tilboðum í vátryggingarþjónustu sveitarfélagsins, Hafnasamlags Norðurlands og Norðurorku hf.
ÚtboðÚtboð á hýsingu-, rekstrar og notendaþjónustu fyrir Akureyrarbæ
Akureyrarbær óskar eftir tilboðum í hýsingu og rekstur upplýsingatækniumhverfis sveitarfélagsins, auk notendaþjónustu.

Viðtalstímar bæjarfulltrúa
Viðtalstímar bæjarfulltrúa eru einu sinni í mánuði og verða tveir bæjarfulltrúar til viðtals hverju sinni, einn frá meirihluta og einn frá minnihluta. Viðtalstímarnir fara fram á Amtsbókasafninu á Akureyri, Brekkugötu 17 frá klukkan 16:00 - 17:30 4. þriðjudag hvers mánaðar.

Komdu í sund
Sundlaugarnar eru griðastaður þar sem allir geta slakað á, stundað heilsurækt og leikið sér langt frá dagsins amstri. Akureyrarbær rekur fjórar sundlaugar, þar af eru tvær á Akureyri, ein í Grímsey og ein í Hrísey.

Velferðarráð auglýsir styrki til úthlutunar
Velferðarráð Akureyrarbæjar úthlutar styrkjum til starfsemi og þjónustu, sem fellur að hlutverkum þess, einu sinni á ári.
Velferðarráð stýrir fjölbreyttri velferðarþjónustu á vegum Akureyrarbæjar.
Styrkir eru m.a. veittir til félagasamtaka og einstaklinga sem starfa á sviði
félagsþjónustu.
Umsækjendur eru beðnir að kynna sér reglur Akureyrarbæjar um
styrkveitingar svo og samþykkt ráðsins um markmið og vinnulag.
Umsóknarfrestur er til 4. nóvember 2026
