Grafningur
Útlit
Grafningur er heiti á sveitinni vestan Þingvallavatns og Sogsins. Grafningur er löng og mjó hlíð og lítil dalverpi undir Grafningsfjöllum, Hengli og Ingólfsfjalli.
Grafningsvegur er þjóðvegur sem liggur í tæplega 40 km eftir Grafningi. Hann skiptist í tvennt við Ljósafossvirkjun: sunnan megin er Grafningsvegur neðri (nr. 350) og norðan megin Grafningsvegur efri (nr. 360). Lokið var við lagningu bundins slitlags á Grafningsveg árið 2025.[1]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Atli Ísleifsson (21. ágúst 2025). „Markar lok vegferðar sem hófst vegna Kristnihátíðarinnar 2000“. Vísir.