JSTOR
JSTOR (e. Journal Storage „tímaritageymsla“) er stafrænn gagnagrunnur á netinu sem safnar vísindaritum.
Vefurinn hefur verið starfandi frá 1995. Upprunalega safnaði vefurinn aðeins vísindatímaritum, en nú má finna þar bækur, greinar, ritgerðir, dagblöð, myndir og ýmis konar frumheimildir.[1] Vefurinn hýsir bæði efni í opnum aðgangi og efni sem er í áskrift.
Vefurinn er rekinn af sjálfseignarstofnuninni ITHAKA. Yfirlýstur tilgangur stofnunarinnar er að „aðstoða fræðasamfélagið við að nota stafræna tækni til að varðveita fræðirit og til að efla rannsóknir og kennslu á sjálfbæran hátt.“ [2][3]
Yfir 14.000 bókasöfn á heimsvísu eru áskrifendur að þjónustu JSTOR.[4] Þar á meðal eru Landsbókasafn Íslands, Háskólinn á Akureyri og Háskólinn í Reykjavík.[5]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „JSTOR - New World Encyclopedia“. www.newworldencyclopedia.org (enska). Sótt 6 apríl 2026.
- ↑ „Homepage“. About JSTOR (bandarísk enska). Sótt 6 apríl 2026.
- ↑ „Home“. ITHAKA (bandarísk enska). Sótt 6 apríl 2026.
- ↑ „JSTOR for librarians: Resources, services, and support“. About JSTOR (bandarísk enska). Sótt 6 apríl 2026.
- ↑ „JSTOR Home“. www.jstor.org. Sótt 6 apríl 2026.