Oscar Schmidt
Útlit
Schmidt árið 2006 | |
| Persónulegar upplýsingar | |
|---|---|
| Fæðingardagur | 16. febrúar 1958 Natal, Rio Grande do Norte, Brasilía |
| Dánardagur | 17. apríl 2026 (68 ára) |
| Hæð | 6 ft 9 in (2,06 m) |
| Þyngd | 240 lb (109 kg) |
| Körfuboltaferill | |
| Landslið | |
| Nýliðaval NBA | 1984: 6. umferð, 131. valréttur |
| Valin af New Jersey Nets | |
| Leikstaða | Framherji |
| Liðsferill | |
| 1974–1978 | S.E. Palmeiras |
| 1978–1982 | E.C. Sírio |
| 1982 | América do Rio |
| 1982–1990 | JuveCaserta |
| 1990–1993 | Pavia |
| 1993–1995 | Valladolid |
| 1995–1997 | S.C. Corinthians Paulista |
| 1997–1999 | Bandeirantes / Mackenzie |
| 1999–2003 | C.R. Flamengo |
| Tölfræði á Basketball Reference | |
Oscar Daniel Bezerra Schmidt (16. febrúar 1958 – 17. apríl 2026) var brasilískur körfuknattleiksmaður. Schmidt, sem var 2,06 m á hæð og vó 109 kg, spilaði aðalega sem framherji á ferli sínum. Auk heimalands síns spilaði Schmidt einnig á Ítalíu fyrir JuveCaserta og Pavia, og á Spáni fyrir Valladolid.[1]
Hann var almennt talinn vera stigahæsti leikmaður í sögu körfuboltans með 49.973 stig skoruð samanlagt á atvinnumanna- og landsliðsferli þar til LeBron James braut metið þann 2. apríl 2024. Hann á enn metið fyrir lengsta atvinnumannaferilinn í körfubolta, 29 ár. Auk þess er hann stigahæsti leikmaðurinn í sögu Sumarólympíuleikanna og HM í körfubolta.[1]
Schmidt lést 17. apríl 2026 eftir að hafa glímt við heilaæxli í 15 ár.[2]
Titlar
[breyta | breyta frumkóða]Félagslið
[breyta | breyta frumkóða]- Brasilíska meistaramótið
- Meistari (3): 1977, 1979, 1996
- Ítalska bikarkeppnin
- Meistari: 1988
Landslið
[breyta | breyta frumkóða]- Heimsmeistaramót
- Brons: 1978
- Ameríkumeistaramót karla
- Gull (2): 1984, 1988
- Brons (2): 1989, 1995
- Pan Ameríku leikarnir
- Gull: 1987
- Brons: 1979
- Suður-Ameríkumeistaramótið
- Gull (3): 1977, 1983, 1985
- Silfur (2): 1979, 1981
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- 1 2 „The Naismith Memorial Basketball Hall of Fame :: Oscar Schmidt“. www.hoophall.com (enska). Sótt 28 júní 2025.
- ↑ „Oscar Schmidt, the Basketball Hall of Famer from Brazil, dies at 68“. AP News (enska). 17 apríl 2026. Sótt 17 apríl 2026.