Forsíða
60.917 greinar á íslensku.
Simón Bolívar
Simón Bolívar var frelsishetja Suður Ameríku. Hann leiddi sjálfstæðishreyfingu og sjálfstæðisbaráttu á þeim slóðum sem nú eru löndin Venesúela, Kólumbía, Ekvador, Perú, Panama og Bólivía. Þar, líkt og í öðrum löndum Rómönsku Ameríku, er hann talinn mikil hetja. Hann fæddist í Karakas. Árið 1802, kvæntist hann Maríu Teresu Rodríguez del Toro y Alaysa, hún lést ári síðar. Hann var fyrsti forseti Lýðveldisins Bólivíu er það var stofnað 1825. Segja má að hann sé eins konar Jón Sigurðsson eða George Washington Rómönsku Ameríku, en þar er hann stundum kallaður „El Libertador“, eða Frelsarinn.
Vissir þú...

- … að óklárað minnismerki af frumbyggjaleiðtoganum Æra Fáki í Dimmufjöllum í Suður-Dakóta yrði stærsta myndastytta í heimi ef það væri klárað?
- … að aldrei er sagt í Biblíunni að vitringarnir þrír hafi verið þrír talsins, heldur eru þeir aðeins taldir þrír samkvæmt hefð?
- … að tónlist úr James Bond-myndinni Njósnarinn sem elskaði mig var notuð í hljóðmynd íslensku útvarpsþáttanna um Harrý og Heimi.?
- … að hætt var við sýningu kvikmyndarinnar Síðasta freisting Krists í Ríkisútvarpinu árið 1997 eftir kvartanir yfir guðlasti frá Ólafi Skúlasyni biskupi?
- … að Atahualpa (sjá mynd), síðasti keisari Inkaveldisins, greiddi landvinningamanninum Francisco Pizarro heilt herbergi af gulli í skiptum fyrir lausn sína úr haldi árið 1533, en var tekinn af lífi eftir að lausnargjaldið var greitt?
Fréttir

- 12. apríl: Þingkosningar fara fram í Ungverjalandi. Tisza-flokkurinn, undir forystu Péters Magyar (sjá mynd), sigrar Fidesz-flokk Viktors Orbán forsætisráðherra.
- 8. apríl: Samið er um tveggja vikna vopnahlé í Íransstríðinu.
- 1. apríl: Geimflugið Artemis II leggur af stað frá jörðu í ferð í kringum tunglið.
- 24. mars: Þingkosningar fara fram í Danmörku. Jafnaðarmannaflokkur Mette Frederiksen forsætisráðherra tapar miklu fylgi en vinnur þó flest þingsæti.
Yfirstandandi: Borgarastyrjöldin í Jemen • Borgarastyrjöldin í Súdan • Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Íransstríðið • Stríð Ísraels og Hamas
Nýleg andlát: Oscar Schmidt (17. apríl) • Moya Brennan (13. apríl) • Björgvin Halldórsson (9. apríl) • Lionel Jospin (22. mars)
20. apríl
- 2017 - Hryðjuverkaárásin á Champs-Élysées: Kharim Cheurfi réðist á lögreglumenn og þýska ferðakonu með AK-47-árásarriffli.
- 2020 – Hráolíuverð náði sögulegu lágmarki vegna faraldursins og verð á West Texas Intermediate-hráolíu varð neikvætt.
- 2020 – Benjamin Netanyahu og Benny Gantz samþykktu að mynda þjóðstjórn í Ísrael og binda þannig enda á langa stjórnarkreppu.
- 2021 - Forseti Tjad, Idriss Déby, lést í átökum við uppreisnarmenn eftir 30 ára valdatíð. Herforingjastjórn tók við völdum.
- 2021 - Lögreglumaðurinn Derek Chauvin var dæmdur sekur fyrir morðið á George Floyd í Minneapolis.
- 2022 - José Ramos-Horta var kjörinn forseti Austur-Tímor.
- 2023 - Edda (Hús íslenskra fræða) var opnað almenningi.
Systurverkefni
|
|