1377
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1377 (MCCCLXXVII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Lögmennirnir, Sigurður Guðmundsson og Þorsteinn Eyjólfsson, fóru um landið og létu hylla Magnús konung og síðan var honum svarið land á Alþingi.
- Runólfur Magnússon varð ábóti í Þykkvabæjarklaustri.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Eyjólfur Pálsson, ábóti í Þykkvabæjarklaustri.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 17. janúar - Gregoríus XI páfi flutti páfastólinn aftur til Rómar frá Avignon með hjálp heilagrar Katrínar.
- 3. febrúar - Um 4.000 andpáfauppreisnarmenn voru drepnir í borginni Cesena á þremur dögum.
- 15. mars - Al-Ashraf Sha'ban soldán Egyptalands var ráðinn af dögum.
- 21. mars - Hundrað ára stríðið: Englendingurinn John Minsterworth var handtekinn í Pamplona. Upp komst um ráðabrugg hans um að hjálpa Frakklandskonungi í fyrirhugaðri innrás á England. Hann var sendur til Englands og tekinn af lífi.
- 24. júní - Frakkland og England hófu á ný stríð sitt um Akvitaníu.
- 2. ágúst - Mongólskir innrásarmenn tóku Nízhníj Novgorod af rússneskum furstadæmum.
- 24. september - Aragónski riddarinn Juan Fernández de Heredia varð leiðtogi Jóhannesarriddaranna sem réðu Ródos og Kýpur.
- Trezzo sull'Adda-brúin var fullbyggð í Langbarðalandi, lengsta bogabrú heims í 4 aldir.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 15. febrúar - Ladislás, konungur Napólí (d. 1414)
- 1. ágúst - Go-Komatsu, keisari Japans (d. 1433)
- 5. desember - Jianwen, keisari Kína (d. 1402)
- Filippo Brunelleschi, ítalskur arkitekt (d. 1446).
- Loðvík 2. af Anjou, konungur Napólí (d. 1417)
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 27. janúar - Friðrik einfaldi, konungur Sikileyjar (f. 1341).
- Apríl - Guillaume de Machaut, franskt tónskáld og ljóðskáld (um 1300).
- 21. júní - Játvarður 3. Englandskonungur (f. 1312).
- 1. desember - Magnús Eiríksson smek (f. 1316).
- Álfur, síðasti biskup á Grænlandi.
- Rikardis af Schwerin, Svíadrottning, kona Albrechts af Mecklenburg (d. 1347).