1388
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1388 (MCCCLXXXVIII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Guðmundur Ormsson (f. um 1360) hvarf um nótt í Færeyjum með undarlegum hætti.
- Björn Einarsson Jórsalafari hélt af stað í suðurgöngu til Rómar.
- Þorsteinn Eyjólfsson tók við hirðstjóraembættinu í fjórða sinn eftir að Eiríkur Guðmundsson var drepinn.
- Mikael Skálholtsbiskup sigldi til Danmerkur og kom ekki aftur.
- Fædd
- Dáin
- 23. febrúar - Eiríkur Guðmundsson hirðstjóri veginn.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 24. janúar - Konungsríkið Arborea á Sardiníu og Konungsríkið Aragónía sömdu um frið í stríði sínu.
- 2. febrúar - Margrét Valdimarsdóttir varð drottning Noregs eftir andlát sonar síns, Ólafs 4. Hákonarsonar.
- 9. apríl - Kantónan Glarus, í bandalagi við aðrar svissneskar kantónur, vann sigur á Hertogadæminu Austurríki og Habsborgurum við Näfels.
- 18. maí - Mingveldið kínverska vann sigur á Mongólum og eyðilagði höfuðborg þeirra.
- 3. desember - Karl 6. Frakkakonungur tók við stjórn ríkisins af forráðamanni sínum og föðurbróður, Filippusi 2. hertoga af Búrgund.
Ódagsett
[breyta | breyta frumkóða]- Margrét Valdimarsdóttir var kjörin ríkisstjóri Svíþjóðar.
- Ramesuan varð konungur Ayutthaya (nútíma suður-Taíland) eftir að hafa steypt af stóli 17 ára konunginum Thong Lan og tekið hann af lífi.
- Hershöfðinginn Yi Seong-gye hóf byltingu í Kóreu gegn Goryeo-veldinu, eftir að hafa verið skipað að ráðast á Kína.
- Fædd
- Dáin
- 14. september - Claudius Clavus, danskur kortagerðarmaður.