1424
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1424 (MCDXXIV í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Harðindavetur, kallaður Kynjavetur.
- Mislingar og fleiri farsóttir gengu um landið.
- Miklar erjur voru milli Englendinga og fulltrúa Danakonungs og rændu Englendingar konungsgarðinn á Bessastöðum bæði 1423 og 1424.
- Fædd
- Dáin
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 28. mars - Jakob 1. Skotakonungur var leystur úr haldi Englendinga eftir 18 ára fangelsisvist. Hann var krýndur í maí sem konungur Skota.
- 1. apríl - Keisari Mingveldisins hélt til Innri-Mongólíu með næstum milljón hermenn.
- 2. júní - Konungsríkið Napólí vann sigur á hershöfðingjanum Braccio da Montone við L'Aquila.
- 22. júní - Mamlúkar í Egyptalandi hófu að herja á Kýpur.
- 28. júlí - Hertogadæmið Mílanó vann sigur á Lýðveldinu Flórens í orrustunni við Zagonara.
- 17. ágúst - Hundrað ára stríðið: Englendingar unnu sigur á stærri her Frakka í orrustunni við Verneuil.
- 7. september - Zhu Gaochi, varð keisari Mingveldisins eftir lát föður síns.
- 13. september - Hússítastríðin - Hússítar náðu yfirráðum yfir Bæheimi.
- Eiríkur af Pommern, Danakonungur, hélt í pílagrímsferð til Landsins helga og setti Filippu drottningu til að stýra Norðurlöndum á meðan.
- Innrásarflokkur Skota brenndi stóran hluta bæjarins Alnwick í Norðymbralandi til grunna.
- Fædd
- 31. október - Vladislás III Póllandskonungur (d. 1444).
- Lúðvík 4., kjörfursti af Pfalz (d. 1449).
- Dáin