1459
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1459 (MCDLIX í rómverskum tölum)
Atburðir
[breyta | breyta frumkóða]- Teitur Gunnlaugsson í Bjarnarnesi var leystur frá hyllingareið sínum við Eirík af Pommern með Alþingisdómi en hann hafði neitað að viðurkenna aðra konunga yfir Íslandi þótt Eiríkur væri löngu farinn frá.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Torfi Arason frá Stóru-Ökrum í Blönduhlíð, riddari og hirðstjóri, dó í Björgvin (f. um 1410).
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]
- 27. febrúar - Friðrik 3. keisari heilaga rómverska ríkisins gerði tilkall til Konungsríkisins Ungverjalands. Hann réðst inn í landið nokkrum dögum síðar.
- 24. apríl - Afonso 5., konungur Portúgals lét gera heimskortið Fra Mauro sem landkönnuðir gætu notað.
- 24. apríl - Saxland og Bæheimur gerðu með sér Eger-sáttmálann sem myndar núverandi landamæri Tékklands og Þýskalands.
- 12. maí - Borgin Jodhpur á Indlandi var stofnuð af Rao Jodha, leiðtoga Marvar-ríkisins.
- 23. september - Fyrsta orrusta Rósastríðanna í Englandi, bardaginn á Blore Heath.
- 4. desember - Adolf hertogi af Slésvík dó barnlaus og hertogadæmið gekk til Kristjáns 1. Danakonungs.
- Búkarest var fyrst nefnd í heimildum.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 2. mars - Hadrían VI páfi (d. 1523).
- 6. mars - Jacob Fugger, þýskur bankamaður (d. 1525).
- 22. mars - Maximilían 1., keisari hins Heilaga rómverska ríkis.
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Eiríkur af Pommern, fyrrverandi konungur Danmerkur, Svíþjóðar og Noregs (f. 1382).