Joseph Luns
Útlit
| Joseph Luns | |
|---|---|
Joseph Luns árið 1979. | |
| Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins | |
| Í embætti 1. október 1971 – 25. júní 1984 | |
| Forveri | Manlio Brosio |
| Eftirmaður | Carrington lávarður |
| Persónulegar upplýsingar | |
| Fæddur | 28. ágúst 1911 Rotterdam, Hollandi |
| Látinn | 17. júlí 2002 (90 ára) Brussel, Belgíu |
| Þjóðerni | Hollenskur |
| Stjórnmálaflokkur | Kaþólski þjóðarflokkurinn |
| Maki | Lia van Heemstra barónessa (g. 1939; d. 1990) |
| Börn | 2 |
| Háskóli | Háskólinn í Leiden (LLB, Magister Legum) London School of Economics (BEcon) |
| Undirskrift | |
Joseph Marie Antoine Hubert Luns (28. ágúst 1911 – 17. júlí 2002) var hollenskur stjórnmálamaður, utanríkisráðherra Hollands 1952 til 1971 og síðar fimmti framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins. Hann kom að minnsta kosti tvisvar í heimsókn til Íslands á vegum Atlantshafsbandalagsins, snemma á áttunda áratugnum.