Forsíða
60.599 greinar á íslensku.
Saladín
Saladín var kúrdískur hershöfðingi sem stofnaði Ajúbída-ættveldið, sem náði yfir Egyptaland, Sýrland, Palestínu og hluta af norðurhluta Mesópótamíu,
Árið 1187 náði her Saladíns Jerúsalem úr höndum kristinna krossfara eftir sigur í orrustunni við Hattín. Hann barðist lengi við krossfara frá Vestur-Evrópu, einkum í þriðju krossferðinni, þar sem andstæðingur hans var meðal annars Ríkharður ljónshjarta. Þrátt fyrir að Jerúsalem héldist undir stjórn múslima eftir krossferðina, náðist friðarsamkomulag sem tryggði kristnum pílagrímum aðgang að borginni.
Saladín naut mikillar virðingar bæði meðal múslima og kristinna fyrir göfuglyndi sitt og réttsýni, jafnvel í hernaði.
Vissir þú...
- … að Pétur 2. Júgóslavíukonungur er eini konungurinn sem hefur verið grafinn í Bandaríkjunum?
- … að bókin Lolita er talin hafa verið byggð á sambandi Charlie Chaplin og Litu Grey árið 1924?
- … að misjafnt er eftir löndum hvort texti skjáþýðinga sé miðjujafnaður eða vinstrijafnaður?
- … að viðurnefnið „Napóleon á sviði glæpanna“, sem haft var um Moriarty prófessor, óvin Sherlock Holmes, var fengið af raunverulegum glæpaforingja að nafni Adam Worth?
- … að fræðiheiti kolla, regulidae (sjá mynd), merkir „lítill kóngur“ og vísar til litsterkrar krúnu fullorðinna fugla?
Fréttir

- 25. október:
- Luiz Inácio Lula da Silva (sjá mynd) er endurkjörinn forseti Brasilíu.
- Pólitísk mótmælahreyfing stúdenta sigrar ríkisstjórn Aleksandars Vučić í þingkosningum í Serbíu.
- 8. október: Kanadíski rithöfundurinn Anne Carson hlýtur Nóbelsverðlaunin í bókmenntum.
Yfirstandandi: Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Íransstríðið
Nýleg andlát: Patrick Stewart (28. október) • Dennis Hastert (3. október)
2. nóvember
- 2014 - Milliríkjanefnd um loftslagsbreytingar birti lokahluta Fimmtu matsskýrslu sinnar sem talaði um „alvarlegar og óafturkræfar afleiðingar“ loftslagsbreytinga.
- 2017 - Ný tegund órangútangapa, tapanúlíórangútang, var greind í Indónesíu.
- 2022 – Ríkisstjórn Eþíópíu samdi um vopnahlé við uppreisnarmenn í stríðinu í Tígraí.
- 2020 - Fellibylurinn Eta gekk á land í Mið-Ameríku þar sem yfir 100 fórust.
- 2023 - Bítlarnir gáfu út sitt síðasta lag, „Now and then“, með hjálp gervigreindar.
- 2024 - Kemi Badenoch varð leiðtogi breska Íhaldsflokksins.
Systurverkefni
|
|