Forsíða
60.593 greinar á íslensku.
Fallbyssa
Fallbyssa er mjög stór byssa, oftast á vagni, fæti eða stalli, sem í eru notuð þung skot. Fallbyssur voru fyrst fundnar upp í Kína um 1150 e.Kr. Svartpúður var notað sem drifefni. Þegar svartpúður brann myndast gas og það þeytti skotinu úr fallbyssuhlaupinu. Fallbyssur bárust til Evrópu á 14. öld. Útbreiðsla þeirra olli aukinni eftirspurn eftir brennisteini og saltpétri sem notuð voru til að framleiða svartpúður. Ísland flutti út brennistein til púðurgerðar frá 14. öld og fram á 19. öld. Fallbyssuhlaup voru framleidd úr bronsi og látúni fram á seinni hluta 19. aldar þegar byrjað var að framleiða fallbyssuhlaup úr stáli. Á 20. öld urðu fallbyssur langdrægari og öflugri. Nýjar tegundir fallbyssna eins og skriðdrekavarnarbyssur, skriðdrekabyssur, loftvarnabyssur og vélfallbyssur komu einnig fram á 20. öld þegar hertækni fleygði fram. Eftir seinni heimsstyrjöldina tóku eldflaugar við hlutverki fallbyssna sem meginvopn herskipa og voru hentugri til að granda skriðdrekum. Loftvarnabyssur eru þó enn notaðar í hernaði og stórskotalið er enn eitt af mikilvægustu vopnun nútímavígvallarins
Vissir þú...
- … að Pétur 2. Júgóslavíukonungur er eini konungurinn sem hefur verið grafinn í Bandaríkjunum?
- … að bókin Lolita er talin hafa verið byggð á sambandi Charlie Chaplin og Litu Grey árið 1924?
- … að misjafnt er eftir löndum hvort texti skjáþýðinga sé miðjujafnaður eða vinstrijafnaður?
- … að viðurnefnið „Napóleon á sviði glæpanna“, sem haft var um Moriarty prófessor, óvin Sherlock Holmes, var fengið af raunverulegum glæpaforingja að nafni Adam Worth?
- … að fræðiheiti kolla, regulidae (sjá mynd), er dregið af latneska orðinu „lítill kóngur“ og vísar til litsterkrar kórónu eða kamps fullorðinna fugla?
Fréttir

- 25. október:
- Luiz Inácio Lula da Silva (sjá mynd) er endurkjörinn forseti Brasilíu.
- Pólitísk mótmælahreyfing stúdenta sigrar ríkisstjórn Aleksandars Vučić í þingkosningum í Serbíu.
- 8. október: Kanadíski rithöfundurinn Anne Carson hlýtur Nóbelsverðlaunin í bókmenntum.
Yfirstandandi: Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Íransstríðið
Nýleg andlát: Dennis Hastert (3. október)
31. október
- 2014 - Forseti Búrkína Fasó, Blaise Compaoré, sagði af sér eftir að herinn tók völdin.
- 2014 - Geimfarið „VSS Enterprise“, af gerðinni SpaceShipTwo, hrapaði. Einn flugmaður fórst.
- 2015 - Heimssýningin Expo 2015 hófst í Mílanó.
- 2015 - 224 létust þegar rússneska farþegavélin Metrojet flug 9268 hrapaði á Sínaískaga í Egyptalandi.
- 2017 - Pallbílsárásin í New York 2017: Maður ók pallbíl á göngu- og hjólreiðafólk við Hudson River Park í New York-borg með þeim afleiðingum að 8 létust
- 2020 - Fellibylurinn Goni gekk á land í Catanduanes á Filippseyjum og olli miklu tjóni.
- 2020 - Brandenborgarflugvöllur í Berlín var opnaður eftir 14 ára byggingartímabil.
- 2021 - Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna 2021 hófst í Glasgow í Skotlandi.
Systurverkefni
|
|