Forsíða
60.592 greinar á íslensku.
Fallbyssa
Fallbyssa er mjög stór byssa, oftast á vagni, fæti eða stalli, sem í eru notuð þung skot. Fallbyssur voru fyrst fundnar upp í Kína um 1150 e.Kr. Svartpúður var notað sem drifefni. Þegar svartpúður brann myndast gas og það þeytti skotinu úr fallbyssuhlaupinu. Fallbyssur bárust til Evrópu á 14. öld. Útbreiðsla þeirra olli aukinni eftirspurn eftir brennisteini og saltpétri sem notuð voru til að framleiða svartpúður. Ísland flutti út brennistein til púðurgerðar frá 14. öld og fram á 19. öld. Fallbyssuhlaup voru framleidd úr bronsi og látúni fram á seinni hluta 19. aldar þegar byrjað var að framleiða fallbyssuhlaup úr stáli. Á 20. öld urðu fallbyssur langdrægari og öflugri. Nýjar tegundir fallbyssna eins og skriðdrekavarnarbyssur, skriðdrekabyssur, loftvarnabyssur og vélfallbyssur komu einnig fram á 20. öld þegar hertækni fleygði fram. Eftir seinni heimsstyrjöldina tóku eldflaugar við hlutverki fallbyssna sem meginvopn herskipa og voru hentugri til að granda skriðdrekum. Loftvarnabyssur eru þó enn notaðar í hernaði og stórskotalið er enn eitt af mikilvægustu vopnun nútímavígvallarins
Vissir þú...

- … að um helmingur allra íbúa Paragvæ lést í Paragvæstríðinu 1864–1870?
- … að barnastjarnan Shirley Temple varð á fullorðinsárum sínum sendiherra Bandaríkjanna í Gana og Tékkóslóvakíu?
- … að samkvæmt hefðum ástralskra frumbyggja áttu eingöngu karlmenn að leika á hljóðfærið didgeridoo (sjá mynd)?
- … að metþátttaka í Reykjavíkurmaraþoninu var árið 2014, þegar 15.552 þáttakendur voru skráðir?
- … að titill bókarinnar Lord of the Flies er vísun í viðurnefni djöfulsins Belsebúbs?
Fréttir

- 25. október:
- Luiz Inácio Lula da Silva (sjá mynd) er endurkjörinn forseti Brasilíu.
- Pólitísk mótmælahreyfing stúdenta sigrar ríkisstjórn Aleksandars Vučić í þingkosningum í Serbíu.
- 8. október: Kanadíski rithöfundurinn Anne Carson hlýtur Nóbelsverðlaunin í bókmenntum.
Yfirstandandi: Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Íransstríðið
Nýleg andlát: Dennis Hastert (3. október)
31. október
- 2011 - Mennta-, vísinda- og menningarstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) samþykkti í kosningu að veita Palestínu aðild. Mannfjöldinn á jörðinni náði 7 milljörðum samkvæmt mati Sameinuðu þjóðanna.
- 2014 - Forseti Búrkína Fasó, Blaise Compaoré, sagði af sér eftir að herinn tók völdin. Geimfarið „VSS Enterprise“, af gerðinni SpaceShipTwo, hrapaði. Einn flugmaður fórst.
- 2015
- Heimssýningin Expo 2015 hófst í Mílanó.
- 224 létust þegar rússneska farþegavélin Metrojet flug 9268 hrapaði á Sínaískaga í Egyptalandi.
- 2017 - Pallbílsárásin í New York 2017: Maður ók pallbíl á göngu- og hjólreiðafólk við Hudson River Park í New York-borg með þeim afleiðingum að 8 létust
- 2020
- Fellibylurinn Goni gekk á land í Catanduanes á Filippseyjum og olli miklu tjóni.
- Brandenborgarflugvöllur í Berlín var opnaður eftir 14 ára byggingartímabil.
- 2021 - Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna 2021 hófst í Glasgow í Skotlandi.
Systurverkefni
|
|